Nýr meirihluti í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar!

Kærar þakkir fyri góðan stuðning!
Kæru Sandgerðingar!
Við frambjóðendur og starfsfólk S - listans viljum þakka ykkur mikinn og góðan stuðning við okkar framboð og þau góðu málefni sem við stöndum fyrir. Stuðningur ykkar hefur fært okkur góðan sigur og við ætlum svo sannarlega að standa undir trausti ykkar.
Til hamingju öll og aftur, innilegar þakkir fyrir góðan stuðning!... 
______________________________________________________________
Fiskiveisla S - listans
Hér koma nokkrar myndir frá fjölsóttri fiskiveislu S - listans sem boðið var til í dag, 28. maí. Vel á þriðja hundrað bæjarbúar komu í heimsókn á tímabilinu frá kl. 18 til 20 og slökuðu á með frambjóðendum og starfsfólki S - listans. Kærar þakkir til allra þeirra sem mættu á svæðið fyrir ánægjulega samverustund.
Munið kosningakaffið allan kosningadaginn í kosningamiðstöð S - listans í húsi Sigurvonar við Sandgerðishöfn. Um kvöldið verður Eurovisionkeppnin sýnd á breiðtjaldi og kosningavakan hefst kl. 22.


Föstudaginn 28. maí kl. 18.00 ætlar S – listinn að bjóða Sandgerðingum til fiskiveislu í húsnæði S – listans, Strandgötu 22. Boðið verður upp á grilluð fiskispjót, gos og pylsur fyrir börnin. Ungir og upprennandi listamenn syngja fyrir gesti auk þess sem félagar úr harmonikkufélagi Suðurnesja mæta á svæðið.
Komið og njótið með okkur kvöldsins í sumarblíðunni undir ljúfum harmonikkuleik.

laugardaginn 22. maí kl. 11:00
Frambjóðendur S - listans bjóða í morgunkaffi laugardaginn 22. maí n.k. í kosningamiðstöðinni við Sandgerðishöfn. Þar verður farið yfir stefnuskrá S - listans sem var dreift til bæjarbúa s.l. fimmtudag og frambjóðendur munu sitja fyrir svörum. Áhugafólk um málefni Sandgerðisbæjar er hvatt til að mæta og taka þátt í morgunspjalli um þau mál sem eru sett á oddinn fyrir komandi kjörtímabil. Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni og eitthvað gómsætt með.
Kær kveðja,
frambjóðendur S - listans í Sandgerði

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra 
í morgunkaffi hjá S-listanum á laugardaginn.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra verður í morgunkaffi í kosningamiðstöð S - listans laugardaginn 15. maí kl. 11:00. Það eru mörg verkefni á vegum iðnaðarráðuneytisins sem tengjast uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjunum með einum eða öðrum hætti. Í morgunkaffinu mun iðnaðarráðherra fara yfir stöðuna í þessum verkefnum og taka þátt kaffispjalli um það sem á fundarmönnum brennur. Heitt verður á könnunni og boðið upp á kaffibrauð. Sandgerðingar eru hvattir til að fjölmenna í morgunkaffið S - listans á laugardaginn kl. 11:00 og taka þátt í morgunspjalli við ráðherra.
Frambjóðendur S - listans í Sandgerði
Mjög góður fundur með iðnaðarráðherra, góðar
umræður um atvinnumál á Suðurnesjum


„Biðlistar á Leikskólann óþarfir“,
segir Sigursveinn Bjarni Jónsson sem skipar 2. sæti S - listans hér í Sandgerði
Orðið hefur vart við óánægju hjá foreldrum 12-18 mánaða barna með þá ákvörðun, sem samþykkt var samhljóða í Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar, að hækka viðmiðunaraldur inn á Leikskólann Sólborg upp í 18 mánaða aldur. Viðmiðið var áður 12 mánuðir en í nýlegum sparnaðaraðgerðum sem bæjaryfirvöld voru knúin að grípa til var ákveðið að hækka inntökualdurinn á nýjan leik. Að betur athuguðu máli mætti grípa til aðgerða sem leysa myndu þennan vanda og að sama skapi yrði hægt að leysa húsnæðisvanda leikskólans til næstu 10 ára að minnsta kosti. Nýlokið er umfangsmikilli stækkun á húsnæði Grunnskólans í Sandgerði og er hluti af húsakosti skólans vannýttur.
Samstarf Grunnskólans, Leikskólans og Tónlistarskólans hefur verið með miklum ágætum undanfarin ár og þykir það til eftirbreytni fyrir önnur sveitarfélög. Elsti árgangur Leikskólans hefur reglulega heimsóknatíma í Grunnskólann og nú er svo komið að talsverður hluti af starfi árgangsins fer fram innan veggja Grunnskólans og þar með talið Íþróttamiðstöðvar. Með því að ganga skrefið til fulls og færa elsta árgang Leikskólans yfir í húsnæði Grunnskólans losnar töluvert rými innan veggja Leikskólans og biðlistar heyra sögunni til. Húsakostur Grunnskólans nýtist að sama skapi betur með þessari tilfærslu.
Að sjálfsögðu yrði þessi vinna að fara fram í nánu samráði við foreldra, skólastjórnendur og starfsfólk Leikskólans og Grunnskólans. Það yrði sett sem skilyrði að árgangurinn yrði áfram undir stjórn og handleiðslu Leikskólans og starfið yrði í nánast óbreyttri mynd frá því sem nú er. Mikilvægt er að hafa hagsýni að leiðarljósi við ákvarðanatökur um rekstur bæjarins og vill S – listinn skoða þennan möguleika vel. Hafa verður í huga að breytingar sem þessar leiði ekki til neikvæðra áhrifa á vinnumarkaði heldur skapi betri möguleika fyrir neytendur, starfsfólk og bæjarfélagið.
Kær kveðja,
Sigursveinn Bjarni Jónsson,
skipar 2. sæti S - listans
Síðast uppfært (Sunnudagur, 30. maí 2010 10:57)
|
Fjölskylduganga S - listans á uppstigningardag!
![]() ![]() Ævikvöld í heimabyggðMánudaginn 10. maí 2010 kl. 20:00 Frambjóðendur S - listans bjóða eldri borgurum í Sandgerði að þiggja kaffi og léttar veitingar í Miðhúsum mánudagskvöldið 10. maí kl. 20:00. Eldri borgarar í Sandgerði eru hvattir til að koma í Miðhús á mánudagskvöldið og taka þátt í því að gera góðan bæ betri. Frambjóðendur S - listans í Sandgerði. S – lista dagurinn er 8. maíÞað verður viðburðaríkur dagur hjá S – listanum laugardaginn 8. maí. Samfylkingarfélög vítt og breitt um landið halda uppá 10 ára afmæli Samfylkingarinnar sem var 5. maí s.l. með margvíslegum hætti um helgina. Við hér í Sandgerði ætlum að bjóða bæjarbúum að koma til okkar í kaffi og vöfflur í kosningamiðstöðinni eftir hádegið og kynna sér málefnaskrá S – listans í leiðinni. Málefnakaffi. Við byrjum daginn í kosningamiðstöðinni á málefnafundi og morgunkaffi kl. 11:00. Við ætlum að ræða um málefni líðandi stundar hér í Sandgerðisbæ og skoða möguleikana næstu vikurnar. Á skrifstofunni verða þau Elín, Alda, Gunnar og Kristinn. Einnig taka á móti ykkur í kosningamiðstöðinni þau Helgi, Svavar og Steinunn. Kynning á stefnuskrá. Við munum horfa fram á veg þegar forystufólk S – listans mun kynna stefnumálin fyrir komandi kjörtímabil 2010 til 2014. Kynningin hefst formlega kl. 12:30 (athugið breyttan tíma vegna bikarleiks Ksf. Reynis og ÍH kl.14:00) Það er spennandi að sjá hvað S – listinn ætlast fyrir næstu fjögur árin og fyrir bæjarbúa er kynningin mjög áhugaverð og hvetjum við fólk til að koma og skoða málin með okkur.
Nýstofnað félag ungra jafnaðarmanna í Sandgerði sem hefur fengið nafnið „Sóllilja“ býður til fagnaðar í kosningamiðstöð S – listans hinn 8. maí í tilefni af stofnun félagsins og er skemmtunin einnig á vegum UJ félaga á Suðurnesjum. Nýverið voru stofnuð 2 önnur félög ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum þ.e. í Grindvík og Reykjanesbæ. Félögin taka höndum saman og halda nú gott stuð partý til að fagna þessum merka áfanga og byrjar fjörið kl. 21:00. Mætið á svæðið og takið þátt í góðum og skemmtilegum félagsskap!
Það er eins gott að gleyma ekki að skila inn framboðslistanum. S – listinn er tilbúinn með sín gögn og munu Óli Þór og Bagga storma á fund kjörstjórnar kl. 11:00 til að koma framboðsgögnunum í réttar hendur. Kær kveðja frá frambjóðendum og starfsfólki S – listans. > S – listinn í Sandgerði er fjöldahreyfing <
Nú er undirbúningur fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, sem fram fara hinn 29. maí n.k. kominn á fullt skrið hjá frambjóðendum og starfsfólki S – listans og margir mjög viðburðaríkir dagar framundan. Kosningamiðstöðin verður opin alla daga fram að kosningum eins og hér segir: Margir viðburðir eru fyrirhugaðir hjá S – listanum í maímánuði og eru hér taldir þeir helstu, en viðburðir eru auglýstir á heimasíðu S – listans, www.slistinn.is og www.245.is og einnig bendum við á Facebook síðu S – listans þar sem viðburðir verða auglýstir. Við hvetjum bæjarbúa til að fylgjast vel með. Helstu viðburðir S – listans eru:
Allir viðburðir S – listans verða auglýstir sérstaklega m.a. á www.245.is og heimasíðunni www.slistinn.is og einnig verða viðburðir auglýstir í S – lista blaðinu. Við bendum einnig á Facebook síðu S – listans. Bæjarbúar eru hvattir til að fylgjast vel með og taka virkan þátt í þeim viðburðum sem S – listinn býður til. Góða skemmtun og eigið gleðilegan maímánuð með okkur! Frambjóðendur og starfsfólk S – listans. ___________________________________________________________
Opnunartími kosningamiðstöðvar
Nú er kosningavinnan hafin af fullum krafti og verður kosningamiðstöð S - listans opin frá og með 3. maí fram að kosningum 29. maí eins og hér segir: Alla virka daga kl. 18:00 til 21:00
Laugardaga kl. 11:00 til 17:00 Sunnudaga kl. 13:00 til 17:00 Símanúmer í kosningamiðstöð er 423-7474 ___________________________________________________
Stofnfundur Ungra jafnaðarmanna í Sandgerði verður haldinn miðvikudaginn 5. maí kl. 20:00 í kosningamiðstöð S – listans í Björgunarsveitarhúsinu Sandgerði. Heiðursgestur fundarins verður Þjóðbjörg Gunnarsdóttir sem situr í baráttusæti S- listans í komandi bæjarstjórnarkosningum í Sandgerði. Allir velkomnir! Framboð skulu tilkynnt með því að senda fullt nafn, kennitölu og símanúmer til Andrésar Fjeldsted, formanns kjörstjórnar, á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Hægt er að ná í Andrés í síma 698-7612. __________________________________________________________
Ágætu bæjarbúar! Við hvetjum alla til að skoða heimasíðuna vel. Hér má finna ýmsar upplýsingar m.a. upplýsingar um frambjóðendur, síma Kær kveðja, frambjóðendur og kosningastjórn S – listans.
S - listinn opnar kosningamiðstöð Laugardaginn 24. apríl kl. 14:00 opnaði S - listinn kosningamiðstöð sína í húsi Björgunarsveitarinnar SIGURVONAR við Sandgerðishöfn. Af þessu tilefni bauð S - listinn til hátíðar með þéttskipaðri dagskrá og boðið var upp á kaffiveitingar og gómsætt heimagert bakkelsi. Þjóðbjörg Gunnarsdóttir sem skipar baráttusæti S - listans, 4. sætið, Dagskráin var eftirfarandi: Andri Þór Ólafsson spilaði á harmonikku á meðan gestir streymdu í hús Opnunarhátíðin var mjög fjölsótt. Vel á annað hundrað gestir mættu til að samfagna okkur frambjóðendum og starfsfólki S - listans. Svona góð mæting er mikil hvatning fyrir okkur S - listafólk og færum við öllum gestum okkar miklar þakkir fyrir frábæran dag. Nú er kosningavinnan formlega hafin! S - listann til sigurs fyrir Sandgerði!
S - listinn óskar öllum Sandgerðingum gleðilegs sumars!
S – listinn í Sandgerðisbæ Kæru bæjarbúar. Bæjarfélaginu má líkja við stórt fyrirtæki sem árlega veltir háum fjárhæðum og miklu máli skiptir að vel takist til um val á fólki til að stýra þeim mikilvægu verkefnum og málefnum sem tekist er á við í slíkum rekstri. Bæjarfélagið hefur þá sérstöðu umfram venjuleg fyrirtæki að hafa miklar skyldur við okkur íbúana um margvíslegar framkvæmdir og þjónustu og er alls ekki alltaf einfalt að meta áherslur og þarfir frá einum tíma til annars. Jafnaðarmenn og óháðir borgarar hafa í áratugi náð að vinna vel saman að málefnum bæjarfélagsins og hafa haft forystu um að móta þá stefnu sem hefur skilað bænum svo vel fram á veg sem raun ber vitni. Á S – listanum eru traustir einstaklingar sem búa sameiginlega yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem er nauðsynlegt veganesti til að takast á við hin ýmsu málefni sem oft eru viðkvæm, flókin og vandmeðfarin. Framboðslistinn var formlega kynntur og samþykktur á fjölmennum fundi sunnudaginn 28. mars s.l.
|






Stofnfundur ungra jafnaðarmanna í Sandgerði








